3 | Sýrland, Brexit og heimilisofbeldi í Rússlandi
Update: 2019-08-30
3
Description
Í þriðja þætti Heimskviðna fjallar Ólöf Ragnarsdóttir um borgarastyrjöldina í Sýrlandi, sem hefur staðið yfir í tæpan áratug. Hundruð þúsunda hafa þurft að yfirgefa heimili sín og enginn veit hvað átökin hafa kostað mörg mannslíf.
Birta Björnsdóttir fjallar um heimilisofbeldi í Rússlandi. Mál þriggja systra sem myrtu föður sinn hefur vakið heimsathygli og beint kastljósinu að heimilisofbeldi í landinu.
Elísabet Bretadrottning féllst í vikunni á beiðni forsætisráðherra landsins, Boris Johnson, um að gera hlé á þingstörfum í landinu. Allt leikur á reiðiskjálfi í breskum stjórnmálum, tveimur mánuðum fyrir fyrirhugaða útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. En af hverju vilja Bretar út, og hvað gerist ef ekki nást útgöngusamningar við Evrópusambandið? Guðmundur Björn Þorbjörnsson ræðir við Julie Smith, fulltrúa í lávarðadeild breska þingsins og lektor við Cambridge-háskóla í evrópskum stjórnmálum.
Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Comments
Top Podcasts
The Best New Comedy Podcast Right Now – June 2024The Best News Podcast Right Now – June 2024The Best New Business Podcast Right Now – June 2024The Best New Sports Podcast Right Now – June 2024The Best New True Crime Podcast Right Now – June 2024The Best New Joe Rogan Experience Podcast Right Now – June 20The Best New Dan Bongino Show Podcast Right Now – June 20The Best New Mark Levin Podcast – June 2024
In Channel